Nú þegar Ísland er að keppa í öllu mögulegu á komandi mánuðum er tilvalið að vera með skemmtilegt og einfalt gotterí á boðstólum fyrir dygga stuðningsmenn heima í stofu. Þessar uppskriftir henta öllum aldri og hægt að útfæra með og án sykurs allt eftir því hvaða súkkulaði er fyrir valinu hverju sinni
Súkkulaði Popp
1 poki poppkorn ( ég kýs stjörnu eða fitness popp, þá er það kallt og tilbúðið hvenær sem er)
1 súkkulaði plata að eigin vali
Nammi til að strá yfir poppið, M&M er sérlega vinsælt og litríkt.
Ég tek bökunar pappír og dreifi poppinu yfir örkina.
Bræði súkkulaðið í örbylgjuofninum þar til alveg bráðnað
Set súkkulaðið yfir poppið þannig að myndist mjóar línur af súkkulaði á poppinu.
Set M&M yfir meðan súkklaðið er ennþá volgt.
Leyfa þessu að kólna alveg og storkna
Setja í fallega skál og njóta!
Fullkomið með Eurovision eða góðum landsleik
Meðan ég er ennþá að vinna með bráðið súkkulaði er tilvalið að útbúa ávaxtaspjót með súkkulaði húðuðum bananabitum.
Þetta slær alltaf í gegn og það má líka alveg sleppa súkkulaðinu og kökuskrautinu, það rennur líka ljúflega niður fyrir allan aldur
Bræði meira súkkulaði og set á bananabitana.
Meðan súkkulaðið er ennþá blautt dreifi ég kökuskrauti á bitana yfir skál svo minna fari til spillis.
Hægt að hafa ákveðinn lit á skrauti ef um þema er að ræða