Prentmöguleikar

Ketó ostafranskar með trufflu/jalapeno sósu

MagnFyrir 1 Undirbúningur5 mínEldunartími10 mínSamtals15 mín

- Samstarf-

Þessar ostafranskar eru einfaldar og fljótlegar.

Þær eru æðislegar sem forréttur í matarboðið eða bara einar og sér þegar manni langar í góðar franskar með djúsí sósu.

Innihaldsefni
 ½ stk. Grillostur frá MS
 Olía ( td avocado eða ólífuolía)
 2 tsk. Paprikukrydd
Sósa
 2 msk 36 % sýrður rjómi frá MS
 1 msk Trufflu aioli
 4 stk. Jalapeno sneiðar í krukku
1

Skerið grillostinn niður í hæfilegar sneiðar og kryddið örlítið með papriku dufti.

Steikið á pönnu á miðlungshita með olíu þar til osturinn er orðinn fallega gylltur.

Blandið saman 36% sýrðum rjóma, truffli aioli og niðurskornu jalapeno sneiðunum.