Prentmöguleikar

Indverskur Ketó kjúklingur

MagnFyrir 1 Undirbúningur20 mínEldunartími25 mínSamtals45 mín

Þennan rétt var að ég elda á instagram um helgina. Indverskur ketó kjúklingur sem slær alltaf í gegn. Það er lítið mál að gera góðan kolvetnaskerta rétt fyrir alla fjölskylduna

Réttur fyrir 3 fullorðna
Marinering fyrir kjúklinginn
 700 g Úrbeinuð kjúklingalæri
 2/3 dós Sýrður rjómi 36%
 2 msk Garam marsala krydd
 1 msk Hvítlauksduft
 3 tsk. Paprikukrydd
Sósa
 1 stk. Hakkaðir tómatar í dós
 1 msk Hvítlauksduft
 1 msk Garam marsalsa krydd
 2 tsk. Paprikudrydd
 1/3 dós Sýrður rjómi 36%
Meðlæti
 Blómkálshrísgrjón
 Naan brauð
1

Útbúið marineringuna í stórri skál með því að blanda saman sýrða rjómanum, garam masala kryddinu, hvítlauksduftinu og papriku kryddinu.
Skerið kjúklinginn niður í bita og bætið útí marineringuna.
Gott er að marinera kjúklinginn í að lágmarki 30 mínútur en það er gott að gera þetta tímanlega og geyma í ísskáp jafnvel yfir nótt.

2

Steikið kjúklinginn á pönnu með olíu í 3-4 mínútur.

Bætið niðursoðnu tómötunum útí ásamt kryddinu og restinni af sýrða rjómanum.

Styrkleiki svona rétt er alltaf smekksatriði en það má alltaf smakka til þegar kjúklingurinn er fulleldaður.

3

36 % sýrður rjómi er sá feitasti sem er í boði á markaðnum. Einstaklega góður og frábær í ýmsa rétti.

Ég ber kjúklinginn fram með blómkálshrísgrjónum sem fást frosin í öllum helstu matvöruverslunum en best finnst mér að skella þeim í lítinn pott, látið sjóða í tvær mínútur og krydda létt með steinselju eða kóríander til að fá fallegan lit og gott bragð.

Ketó naan brauðin slá einnig alltaf í gegn en uppskriftin er væntanleg inn.